WOW air flutti 322 þúsund farþega til og frá landinu í ágúst eða um 42% fleiri farþega en í ágúst árið 2016. Sætanýting WOW air var 90% í ágúst í ár þrátt fyrir 48% aukningu á framboðnum sætum frá sama tímabili í fyrra.
Það sem af er ári hefur WOW air flutt yfir 1,9 milljónir farþega en það er 98% aukning á sama tímabili frá árinu áður að því er kemur fram í tilkynningu frá WOW air.
WOW air flýgur nú til 38 áfangastaða í Evrópu og Norður-Ameríku. Nýlega hófst áætlunarflug til Tel Aviv í Ísrael og hafa nú bæst við fimm nýir áfangastaðir í Bandaríkjunum; Dallas, Cleveland, Cincinnati, St. Louis og Detroit og hefst flug þangað næsta vor.