Byggingakostnaður hækkar um 1,5%

Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan september 2017 hefur hækkað um 1,5% frá fyrri mánuði.

Innlent efni hækkaði um 4,1% (áhrif á vísitölu 1,5%), vélar, flutningur og orkunotkun hækkaði um 0,7% milli mánaða (0,1%) en verð á innfluttu efni lækkaði um 0,6% (-0,1%). Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 3,0%, segir í frétt á vef Hagstofu Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK