Gunnar ráðinn fjárfestatengill Íslandsbanka

Gunnar Sveinn Magnússon.
Gunnar Sveinn Magnússon.

Gunnar Sveinn Magnússon hefur verið ráðinn fjárfestatengill Íslandsbanka. Gunnar hefur starfað undanfarin sex ár hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í Washington D.C. við fjárfestatengsl, samskipti og sjóðastýringu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

Þar segir ennfremur, að áður hafi Gunnar starfað hjá Framkvæmdastjórn ESB í Brussel og áður hjá Landsbankanum við fagfjárfestatengsl.

Gunnar er með meistaragráðu frá London School of Economics og hefur lokið námi í verðbréfamiðlun.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK