Vísbendingar um kólnun í hagkerfinu

Karl Sigurðsson, sérfræðingur á Vinnumálastofnun, segir farið að hægja á fjölgun starfa. Það komi fram í því að atvinnuleysið sé hætt að minnka jafn hratt og undanfarið.

„Það er ekki eins mikil lækkun í kortunum og verið hefur. Atvinnuleysisprósentan fyrir þetta ár hefur lítið lækkað frá fyrra ári. Sjómannaverkfallið í byrjun árs kann að hafa haft einhver áhrif en það virðist almennt vera að hægja á fjölgun starfa,“ segir Karl í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Vinnumálastofnun tekur saman tölfræði yfir fjölda starfa sem eru auglýst hjá stofnuninni. Þær tölur eru gjarnan í öfugu hlutfalli við ganginn í hagkerfinu. Það vekur því athygli að starfafjöldinn er að verða svipaður og árið 2007.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK