Tíu hugmyndir til úrslita í Gullegginu

Úr vinnusmiðju Gulleggsins.
Úr vinnusmiðju Gulleggsins. Ljósmynd/Anton Brink

Tíu hugmyndir hafa verið valdar til að keppa til úrslita í Gullegginu en alls bárust 82 viðskiptahugmyndir. Frá því í september hafa þátttakendur sótt vinnusmiðjur þar sem þeir hafa fengið leiðsögn og fræðslu til að þróa hugmyndir sínar áfram þannig að eftir standi raunhæfar og vandaðar áætlanir. 

Gulleggið er frumkvöðlakeppni sem fer fram á tímabilinu september til október ár hvert og er haldin á vegum Icelandic Startups í samstarfi við stærstu háskóla landsins með stuðningi lykilaðila í íslensku atvinnulífi.

Laugardaginn 28. október munu þessi tíu teymi kynna hugmyndir sínar fyrir dómnefnd sem skipuð er fjárfestum og stjórnendum sem velja sigurvegara keppninnar. Hugmyndirnar eru eftirfarandi:

Atmonia

Umhverfisvæn framleiðsla á ammóníaki.

Freebee

Hugbúnaður sem veitir neytendum aðgang að ókeypis vöru og þjónustu og fyrirtækjum aðgang að rýnihópum.

Genki Instruments

Wave, fyrsta vara fyrirtækisins, er hringur hannaður fyrir tónlistarfólk. Wave nemur hreyfingar handarinnar, snúning og slátt og þannig getur tónlistarfólk stjórnað hljóði og sett af stað skipanir í rauntíma með einföldum hætti.

Reykjavík Roller Coaster

Upplifun í sýndarverkuleika þar sem notandinn þeytist um í rússíbanahermi í gegnum undur íslenskrar náttúru.

Spontant

Hugbúnaður sem hjálpar hvatvísum ferðamönnum að finna ævintýri og afþreyingu á síðustu stundu og ferðaþjónustufyrirtækjum að hámarka nýtingu.

Munndropinn

Dropalaga munnstykki sem þrýstir tungunni niður og kemur þar með í veg fyrir að hægt sé að gnísta tönnum.

Myrkur

Framleiðsla á leikjaseríu sem notar allra nýjustu tækni til að lágmarka kostnað og auka gæði.

Taktikal

Hugbúnaðarlausn sem gerir einstaklingum og lögaðilum mögulegt að stofna til viðskipta á örfáum mínútum og í kjölfarið heimila ýmsar sjálfvirkar þjónustur er krefjast viðskiptasambands.

Tasty Rook

Stafrænir samkvæmisleikir fyrir snjallsíma sem notendur spila augliti til auglitis með fjölskyldu og vinum hvar og hvenær sem er. Fyrirtækið hefur þegar gefið út leikinn Triple Agent.

Ylhýra

Hugbúnaður sem kennir íslensku á samtalsformi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK