Sigurður Garðarsson fjárfestir hefur um langa hríð búið í Noregi þar sem hann byggði upp stórt þjónustufyrirtæki með þúsund starfsmenn. Eftir að hafa selt sinn hlut sneri Sigurður sér að fasteignaþróun á Íslandi.
„Fjárfestingar mínar á Íslandi byrjuðu um aldamótin en umsvifin hafa mest verið síðustu 12 mánuði,“ segir Sigurður sem keypti stóra sumarhúsalóð árið 2000 og byggði þar fjóra sumarbústaði núna í vor. „Það eru spennandi tímar á Íslandi og ég ætla að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem er að byrja. En maður fer varlega af stað.“
Sigurður flutti til Noregs fyrir 35 árum og starfaði í mörg ár hjá þjónustufyrirtækinu Compass Group. Árið 2011 hann stofnaði veitinga- og þjónustufyrirtækið 4service með fjórum fyrrverandi samstarfsfélögum. Fyrirtækið seldi þjónustu eins og mötuneyti og þrif til fyrirtækja á borð við Statoil. Eftir fjögur og hálft ár í rekstri voru starfsmenn 4service orðnir þúsund talsins.
„Við vorum fjórir framkvæmdastjórar hjá Compass Group og hættum á svipuðum tíma. Síðan hittumst aftur fyrir tilviljun og ákváðum að fara í eigin rekstur sem endaði með því að við seldum fyrirtækið til fjárfestingasjóðsins Norvestor.“
Sigurður beindi sjónum að Íslandi eftir að hafa selt sinn hlut. Hann er með mörg járn í eldinum og vinnur meðal annars með sveitarfélögum að húsnæðisuppbyggingu.
„Ég er að setja í gang stór verkefni á Suðurlandi þar sem mikill skortur er á íbúðum í smáum sveitarfélögum. Í Vík í Mýrdal er ég síðan fara í stórt verkefni í samvinnu við sveitarfélagið en planið er að byggja 15 húsa götu.“
Húsin eru framleidd í verksmiðju í Eistlandi, flutt í hlutum til Íslands og sett saman. Hugmyndina fékk Sigurður eftir dvöl í norðurhluta Noregs.
„Þar kynntist ég fyrirtækjum sem voru flink í þróun á fasteignum á afskekktum svæðum. Þetta gengur hratt fyrir sig og er vandað,“ segir Sigurður og bætir við að vöntun sé á nýsköpun á byggingarmarkaði á Íslandi.
Mikill viðsnúningur hefur orðið á afkomu fjárfestingafélags Sigurðar, Sigel. Tap upp á tæplega milljón íslenskar krónur árið 2015 varð að 890 milljóna króna hagnaði 2016.