Hagnaður Drífu ehf., sem rekur meðal annars Icewear-verslanirnar, dróst saman um rúm 28% milli áranna 2015 og 2016 og má rekja samdráttinn til mikillar kostnaðaraukningar.
Hagnaður félagsins var 85,9 milljónir árið 2016 en 119,8 milljónir árið áður. Rekstrargjöld félagins jukust um 45,5% milli ára, úr 1.532 milljónum í 2.230 milljónir, og er þar innifalin 65% aukning launakostnaðar. Á sama tíma jukust rekstrartekjur úr 1.776 milljónum í 2.472 milljónir, eða um 39%.
Eignir félagsins voru 1.521 milljón og hækkuðu um 19% en skuldir námu 964 milljónum og hækkuðu um 26%.
Í október var haft eftir Ágústi Þór Eiríkssyni, forstjóra og eiganda Icewear, í ViðskiptaMogganum að fyrirtækið fyndi fyrir minni kaupmætti ferðamanna og að eftir nokkur mjög góð ár yrði nú ákveðið bakslag sem vinna þyrfti úr.