Kristbjörg nýr útibússtjóri í Borgartúni

Kristbjörg Héðinsdóttir hefur verið ráðin útibússtjóri Arion banka í Borgartúni.
Kristbjörg Héðinsdóttir hefur verið ráðin útibússtjóri Arion banka í Borgartúni. Ljósmynd/Arion banki

Kristbjörg Héðinsdóttir hefur verið ráðin útibússtjóri Arion banka í Borgartúni 18. Hún tekur við starfinu af Elísabetu Árnadóttur sem hefur fært sig um set innan bankans og tekið við starfi forstöðumanns fyrirtækjaviðskipta á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. 

Kristbjörg er viðskiptafræðingur að mennt en hefur auk þess lokið prófi í verðbréfaviðskiptum og námi í markþjálfun. Kristbjörg hefur starfað hjá Arion banka frá árinu 2004 en áður starfaði hún á auglýsingastofunni Gott fólk McCann-Erickson. Á árunum 2013-2016 var Kristbjörg útibússtjóri Arion banka í Garðabæ en síðastliðið ár hefur hún gegnt starfi forstöðumanns þjónustustýringar hjá bankanum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK