Stefna Íslandi fyrir EFTA-dómstólinn

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) ákvað í dag að vísa máli gegn Íslandi til EFTA-dómstólsins þar sem Ísland hefur ekki innleitt EES-löggjöf um rekstraraðila sérhæfðra sjóða innan tilskilinna tímamarka.

Í tilkynningu þess efnis er haft eftir Helgu Jónsdóttur, stjórnarmanni ESA, að tilkoma stöðugs og skilvirks innri fjármálamarkaðar velti á því að allir markaðsaðilar fylgi sameiginlegum reglum og eftirliti. 

Tilskipun 2011/61/EU, og löggjöf sem byggð er á henni, kom á fót lagaramma um heimild og eftirlit með sérhæfðum sjóðum, sem innihalda m.a. vogunarsjóði og einkafjáfestingar.

Löggjöfinni var komið á sem svari við fjármálakreppunni og var markmiðið að skapa skýrt eftirlit til þess að tryggja alhliða og skilvirkt fjármálaumhverfi fyrir rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Tilskipunina átti að innleiða inn í íslenska löggjöf fyrir 1. október 2016.

Þegar ESA vísar málum til EFTA-dómstólsins er það lokaskrefið í formlegu samningsbrotamáli, að því er kemur fram í tilkynningunni. Íslandi hefur áður verið veittur kostur á að koma röksemdum sínum á framfæri sem og að ljúka málinu með því að innleiða viðeigandi löggjöf innan gefinna tímamarka.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK