Ísland hefur á einu ári stokkið úr tíunda sæti í fimmta sæti listans yfir landsframleiðslu á mann í Evrópuríkjunum.
Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum fyrir árið 2016 sem Hagstofan greinir frá var landsframleiðsla á mann á Íslandi 28% yfir meðaltali ESB-ríkjanna og í fimmta sæti Evrópuríkjanna 37 en var í tíunda sæti ári fyrr.
Lúxemborg var í fyrsta sæti þar sem landsframleiðsla á mann var 158% yfir meðaltali ESB ríkjanna og Írland í öðru sæti, 83% yfir meðaltalinu.
„Lúxemborg sker sig úr, en líta verður til þess að fjöldi fólks vinnur og verslar í landinu og leggur til landsframleiðslunnar, en býr utan þess og telst því ekki til íbúa,“ segir í frétt Hagstofunnar.
Samkvæmt endanlegum tölum fyrir árið 2014 var magn vergrar landsframleiðslu á mann á Íslandi 19% yfir meðaltali Evrópusambandsríkjanna 28. Ísland var ellefta í röð ríkjanna 37.