Konráð ráðinn til Viðskiptaráðs

Ljósmynd/Aðsend

Konráð S. Guðjónsson tekur við starfi hagfræðings Viðskiptaráðs á nýju ári, eða 15. janúar 2018. Kristrún Frostadóttir lætur um leið af störfum og tekur við starfi sem aðalhagfræðingur Kviku banka.

Konráð kemur til Viðskiptaráðs frá Arion banka þar sem hann hefur starfað sem sérfræðingur í greiningardeild í þrjú ár. Í greiningardeild vann Konráð að ýmsum greiningum og skýrslum á íslensku efnahagslífi, t.d. um ferðaþjónustu, húsnæðismarkað, krónuna og vaxtaþróun.

Þar áður starfaði Konráð um hríð sem hagfræðingur á skrifstofu forsetans í Tansaníu, hjá Hagfræðistofnun og sem starfsnemi hjá Þróunarsamvinnustofnun í Úganda. Þá hefur Konráð kennt hagfræði fasteignamarkaðarins við Endurmenntun Háskóla Íslands og veitt leiðsögn við laxveiði svo eitthvað sé nefnt.

Konráð er með meistaragráðu í hagfræði frá Warwick háskóla og með BS-próf í hagfræði frá Háskóla Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK