Reykjavíkurborg kaupir Sævarhöfða af Faxaflóahöfnum

Gísli Gíslason hafnarstjóri og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri skrifuðu undir …
Gísli Gíslason hafnarstjóri og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri skrifuðu undir kaupsamninginn. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Gengið var frá kaupum Reykjavíkurborgar á Sævarhöfða 33 af Faxaflóahöfnum í dag. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Gísli Gíslason hafnarstjóri skrifuðu undir kaupsamninginn. Kaupin eru gerð í tengslum við fyrirhugaða uppbyggingu á lóðinni og landfyllingu henni tengdri.

Heildargreiðslur fyrir landið og húseignir eru nær 1,1 milljarður króna. Lóðin Sævarhöfði 33 er alls um 76 þús. fermetrar en einnig er keypt 400 fermetra skrifstofubygging, rúmlega 800 fermetra verkstæði og 400 fermetra vörugeymsla, sem og 100 metra viðlegukantur, að því er fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Kaupin eru gerð að undangengnum samningum við Björgun ehf. um brottflutning og hreinsun svæðisins ásamt gerð hluta þeirrar landfyllingar sem fyrirhuguð er.

Björgun mun afhenda lóðina í áföngum og verður síðasti hlutinn …
Björgun mun afhenda lóðina í áföngum og verður síðasti hlutinn afhentur 1. júní 2019. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

„Um langt skeið hefur legið fyrir að notkun svæðisins muni breytast úr hafntengd[ri] starfsemi yfir í íbúðabyggð. Fyrir liggur rammaskipulag um svæðið og er deil[i]skipulag í auglýsingaferli. Umhverfismat fyrir landfyllingu liggur fyrir ásamt framkvæmdaleyfi og eru framkvæmdir við fyllingargerðina hafnar af hálfu Björgunar samkvæmt verksamningi milli Faxaflóahafna og Björgunar þar um.

Björgun mun afhenda lóðina í áföngum og verður síðasti hlutinn afhentur 1. júní 2019. Byggingarhæfar lóðir verða þó til á hluta svæðisins nokkru fyrr, en lengri tíma mun taka að gera lóðir byggingarhæfar á nýrri landfyllingu. Gert er ráð fyrir að hefja gatnaframkvæmdir á þessu ári á hluta svæðisins.

Vilyrði fyrir tveimur lóðum á svæðinu hefur þegar verið veitt. Annars vegar til Bjargs hses. og hins vegar til Búseta á þeim lóðum sem verða fyrstar byggingarhæfar. Eftir því sem að landfyllingu vindur fram og hægt verður að losa jarðefni af þegar gerðu landi verður fyrsti hluti svæðisins síðan einnig byggingarhæfur,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK