Fær ekki heildsöluaðgang að rásum Vodafone

Vodafone er ekki skylt að veita Símanum heildsöluaðgang að sjónvarpsrásum sínum samkvæmt úrskurði áfrýjunarnefndar Samkeppniseftirlitsins. 

Þetta kemur fram í frétt á vef Samkeppniseftirlitsins. Í október voru heimiluð kaup Fjarskipta hf. (Vodafone) á tilteknum eignum og rekstri 365 miðla. Var samruninn háður skilyrðum sem kváðu meðal annars á um tímabundinn heildsöluaðgang nýrra og smærri keppinauta að mikilvægum sjónvarpsrásum og dreifikerfi Vodafone fyrir sjónvarp. 

Síminn kærði  ákvörðun Samkeppniseftirlitsins í málinu og krafðist þess að breytingar yrðu gerðar á þeim skilyrðum sem voru sett fyrir samrunanum. Krafðist Síminn þess að skilyrðið um heildsöluaðgang að sjónvarpsrásum Vodafone næði einnig til Símans. Taldi Síminn jafnframt að Samkeppniseftirlitið hefði brotið gegn andmælarétti og rannsóknarreglu stjórnsýslulaga við rannsókn málsins.

Áfrýjunarnefndin hafnaði kröfu Símans. Tók hún m.a. fram að ekki verði „annað séð en að þau skilyrði sem samrunanum voru sett með sáttinni séu reist á málefnalegum grunni og að með þeim megi koma í veg fyrir þau skaðlegu áhrif á fjarskipta- og fjölmiðlamarkaði sem samruninn var ella líklegur til að hafa í för með sér.“ 

Þá var það jafnframt mat nefndarinnar að málsmeðferð við rannsókn samrunans hafi verið í samræmi við kröfur stjórnsýslulaga.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK