Tími mikilla verðhækkana virðist nær örugglega vera liðinn og vænta má að meiri ró verði á þessum markaði á næstu misserum að mati hagfræðideildar Landsbankans.
Í Hagsjá er vísað til talna Þjóðskrár sem sýna að fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,2% í desember. Þar af hækkaði verð á fjölbýli um 0,4% og verð á sérbýli lækkaði um 0,4%.
Bent er á að fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hafi nú í desember hækkað um 1,8% á síðustu sex mánuðum, en hækkað um 13,7% næstu sex mánuði þar á undan.
„Sé litið á fjölda viðskipta yfir lengra tímabil má sjá að þeim fækkaði töluvert frá síðasta ári og voru svipuð og á árinu 2015. Fækkun viðskipta var hlutfallslega mun meiri með sérbýli en þar var fækkun viðskipta um 16%. Viðskiptum með fjölbýli fækkaði um 5% milli ára. Sjö ára tímabili síaukinna viðskipta á höfuðborgarsvæðinu lauk því á árinu 2016.“
Segir hagfræðideildin að varasamt sé að horfa of mikið á niðurstöður einstakra mánaða við mat á verðþróun á fasteignamarkaði. „Samanburður milli ára segir ávallt sína sögu en engu að síður bendir þróun síðustu mánaða óneitanlega til þess að kaflaskil hafi orðið á fasteignamarkaðnum á höfuðborgarsvæðinu.“