Fær þrjár vikur til að endurskoða kjararáð

Hópurinn skal bera saman fyrirkomulag um ákvörðun launa hjá kjörnum …
Hópurinn skal bera saman fyrirkomulag um ákvörðun launa hjá kjörnum fulltrúum, dómurum og embættismönnum í nágrannalöndum. Á ljósmyndinni má sjá ríkisstjórn Íslands.

Ríkisstjórnin hefur, að höfðu samráði við heildarsamtök á vinnumarkaði, ákveðið að skipa starfshóp um kjararáð. Starfshópurinn skal ljúka störfum eigi síðar en 10. febrúar.

Hópurinn skal bera saman fyrirkomulag um ákvörðun launa hjá kjörnum fulltrúum, dómurum og embættismönnum í nágrannalöndum og leggja fram tillögur að breyttu fyrirkomulagi launaákvarðana kjararáðs, sé annað fyrirkomulag talið líklegra til betri sáttar í þjóðfélaginu til framtíðar um ákvörðun launa þeirra sem stöðu sinnar vegna njóta ekki samningsréttar.

Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Þar segir ennfremur að starfshópurinn skuli taka til skoðunar úrskurði kjararáðs, meta með hliðsjón af launasetningu og launabreytingum þeirra stétta sem samningsfrelsis njóta og þeirri launastefnu sem samið var um við meginþorra launafólks og eftir atvikum leggja fram tillögur um úrbætur.

Formaður hópsins er Jóhannes Karl Sveinsson hrl. Auk hans sitja í hópnum fyrir hönd ríkisins Benedikt Árnason, skrifstofustjóri í forsætisráðuneyti, Guðrún Þorleifsdóttir, skrifstofustjóri í fjármála- og efnahagsráðuneyti, og Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir, skrifstofustjóri í velferðarráðuneytinu.

Fyrir hönd aðila vinnumarkaðarins sitja í hópnum þau Hannes G. Sigurðsson aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri BSRB, og Magnús Norðdahl, lögfræðingur ASÍ.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK