Sumarhús á Suðurlandi hækka mikið

Sumarbústaðabyggð í landi Úthlíðar í Biskupstungum.
Sumarbústaðabyggð í landi Úthlíðar í Biskupstungum. mbl.is/Golli

Verð á sumarbústöðum hefur hækkað í takt við aukna eftirspurn og á það einkum við um eftirsótta staði á Suðurlandi samkvæmt greiningu hagfræðideildar Landsbankans. Verðhækkunin var rúm 50% frá 2010 til 2017, þar af 16% milli 2016 og 2017. 

Í Hagsjá Landsbankans er farið yfir þróunina síðustu ár. Þar segir að sumarbústaðir hafi verið rúmlega 13 þúsund í lok ársins 2016 og fjölgað um 74% frá árinu 1997. Fjölgunin hafi verið mun meiri í upphafi tímabilsins en á seinustu árum. Þannig fjölgar sumarhúsum um rúm 16% milli áranna 2000 og 2005, en um tæp 9% á árunum 2010-2016.

Rúmlega helmingur sumarhúsa á landinu var á Suðurlandi í árslok 2016 og um fjórðungur á Vesturlandi. Um þrír af hverjum fjórum sumarbústöðum eru því á þessum tveimur svæðum.

„Heilt yfir hefur sala sumarhúsa aukist nokkuð jafnt og þétt allt frá árinu 2008 en það ár fækkaði viðskiptum verulega.

Sala sumarhúsa snarminnkaði á Suðurlandi árið 2008, en jókst svo aftur 2009. Á Vesturlandi fækkaði viðskiptum bæði 2008 og 2009 og sama má segja um Norðurland. Viðskiptum hefur fjölgað mest á eftirsóttustu svæðunum sem eru í um klukkutíma til eins og hálfs tíma akstursfjarlægð frá höfuðborginni.“

Þá segir í Hagsjá að verð hafi hækkað mikið á Vesturlandi frá 2008 til 2011 en lækkað aftur og hækkað töluvert síðan en þó aðeins um 1% milli 2016 og 2017. Verð á Norðurlandi hafi tekið mikinn kipp frá 2009 til 2011 en farið stöðugt lækkandi fram til 2016 og hækkað síðan um 13% í fyrra. 

„Sé meðalfermetraverð á öllum svæðum á landinu borið saman má sjá að það var hæst á Suðurlandi og að það var töluvert lægra á Vesturlandi og Norðurlandi. Verð á öðrum svæðum var töluvert lægra.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK