Arnheiður ráðin yfir fyrirtækjamiðstöð

Arnheiður K. Gísladóttir.
Arnheiður K. Gísladóttir. Ljósmynd/Aðsend

Arnheiður Klausen Gísladóttir hefur tekið við starfi forstöðumanns fyrirtækjamiðstöðvar Landsbankans.

Arnheiður lauk B.Sc.-prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 2000. Við útskrift hóf hún störf sem sérfræðingur í útlánamati fyrir útibú Landsbankans. Hún varð útibússtjóri í Austurbæjarútibúi, síðar Borgartúnsútibúi, árið 2007 og hefur verið svæðisstjóri í Fyrirtækjamiðstöðinni frá árinu 2014.

Fyrirtækjamiðstöð Landsbankans í Borgartúni í Reykjavík sinnir málefnum minni og meðalstórra fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK