Heilsugæsla var vinsælasta leitarorðið

Ljósmynd/Aðsend

Vinsælustu leitirnar á  miðlum Já.is árið 2017 voru leitarorð tengd heilsu, hótelgistingu og útliti. Landsmenn flettu oftast upp heilsugæslu og hótelum, þar á eftir voru það lyf, apótek, snyrtistofur og hárgreiðslustofur.

Í fréttatilkynningu frá Já.is segir að á á síðastliðnu ári hafi landsmenn flett oftast upp á Landspítalanum og þar á eftir Póstinum. Önnur fyrirtæki voru Lyfja, sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu og Landsbankinn.

10 vinsælustu leitarorðin:

  1. Heilsugæsla
  2. Hótel
  3. Lyf
  4. Apótek
  5. Snyrtistofa
  6. Hárgreiðslustofa
  7. Sjúkraþjálfun
  8. Bílaverkstæði
  9. Heilbrigðisstofnun
  10. Læknastöð

5 mest skoðuðu fyrirtækin 

  1. Landspítali
  2. Pósturinn
  3. Lyfja
  4. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
  5. Landsbankinn
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK