Stjórn VR ákvað á fundi sínum í gærkvöldi að stofna leigufélag fyrir félagsmenn VR sem ekki yrði rekið í hagnaðarskyni. Áður hafði trúnaðarráð félagsins hvatt til þess að slíkt félag yrði stofnað.
Í frétt á heimasíðu VR kemur fram að stofnun leigufélagsins sé viðbragð félagsins við gríðarlega erfiðum aðstæðum á húsnæðismarkaði á Íslandi í dag og þá einkum á meðal ungs fólks. Öfugt við almenn leigufélög muni leigufélag VR snúast fyrst og fremst um það hvernig hægt sé að hafa leiguna sem lægsta en ekki sem mesta arðsemi.
„Áætluð uppsöfnuð þörf á nýjum íbúðum á íslenskum markaði eru 6.000 íbúðir og árleg þörf nýrra íbúða eru 2.200 íbúðir svo augljóst má vera að um neyðarástand er að ræða,“ segir í fréttinni. „Stjórn VR telur það félagslega skyldu sína að bregðast við með einhverjum hætti og leggja þannig eitthvað á vogarskálarnar í þeirri von að slíkt viðbragð verði opinberum aðilum, öðrum félögum, samtökum og sjóðum fyrirmynd og hvatning til að gera eitthvað viðlíka eða koma til samstarfs við VR um frekari verkefni.“