Svali stýrir stefnumótun hjá Sjóvá

Svali H. Björgvinsson.
Svali H. Björgvinsson.

Svali H. Björgvinsson hefur verið ráðinn til að stýra stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá og mun hann heyra undir forstjóra félagsins.

Fram kemur í tilkynningu, að Svali hafi víðtæka reynslu af rekstri og stjórnun fyrirtækja. Síðustu 9 ár hefur hann verið framkvæmdastjóri mannauðs- og stefnumótunarsviðs Icelandair, 2003 - 2008 var hann framkvæmdastjóri mannauðssviðs Kaupþings og þar áður meðeigandi PricewaterhouseCoopers. Þá hefur hann yfirgripsmikla reynslu af kennslu á sviði stjórnunar og haldið fjölda fyrirlestra um efnið.

Svali er giftur Ingu Sigrúnu Jónsdóttur og eiga þau þrjú börn.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK