Daníel Svavarsson, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans, og Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, eru á meðal þeirra sem sóttu um starf aðstoðarseðlabankastjóra.
Embætti aðstoðarseðlabankastjóra var auglýst laust til umsóknar 21. febrúar. og rann umsóknarfrestur út 19. mars. Umsækjendur sem uppfylla menntunarkröfur laga um Seðlabanka Íslands eru:
Daníel Svavarsson hagfræðingur.
Guðrún Johnsen hagfræðingur.
Stefán Hjalti Garðarsson, reikni- og fjármálaverkfræðingur.
Jón Þ. Sigurgeirsson viðskiptafræðingur.
Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur.
Ludvik Elíasson hagfræðingur.
Ólafur Margeirsson hagfræðingur.
Rannveig Sigurðardóttir hagfræðingur.
Stefán Jóhann Stefánsson hagfræðingur
Tryggvi Guðmundsson hagfræðingur.
Vilhjálmur Bjarnason viðskiptafræðingur.
Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur.
Forsætisráðherra mun skipa nefnd til að meta hæfi umsækjenda. Niðurstaða hæfnisnefndar verður ráðgefandi fyrir forsætisráðherra.