N1 styrkir ÍBV næstu þrjú árin

Ljósmynd/Aðsend

N1 og stjórn ÍBV hafa undirritað samning sem felur í sér að N1 verður á ný aðalstyrktaraðili ÍBV í meistaraflokki karla í knattspyrnu og gildir samningurinn til næstu þriggja ára.

Þar með er þráðurinn tekinn upp að nýju í samstarfi félaganna tveggja, því fyrirtækið var aðalstyrktaraðili ÍBV á árunum 1988 til 2006. Á því tímabili varð félagið Íslandsmeistari í tvígang og einu sinni tvöfaldur meistari, þegar liðið var bæði Íslands- og bikarmeistari í knattspyrnu.

Það voru þeir Hinrik Örn og Víðir Róbertsson, úr stjórn ÍBV, sem skrifuðu undir samninginn að viðstöddum leikmönnum úr meistaraflokki ÍBV.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK