2,8% atvinnuleysi

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands er áætlað að 203.400 manns á aldrinum 16–74 ára hafi að jafnaði verið á vinnumarkaði í mars 2018, sem jafngildir 81,4% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 197.800 starfandi og 5.600 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 79,2% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,8%.

Samanburður mælinga fyrir mars 2017 og 2018 sýnir að vinnuaflið jókst lítillega eða um 600 manns en hlutfall þess af mannfjölda lækkaði um 3,5 prósentustig. Fjöldi starfandi minnkaði um 1.500 manns og hlutfall þeirra af mannfjölda lækkaði um 4,3 prósentustig.

Atvinnulausir eru um 2.200 fleiri en á sama tíma árið 2017 og hlutfall þeirra lækkaði um 1,1 prósentustig. Alls voru 46.500 utan vinnumarkaðar og fjölgaði þeim um 10.300 manns frá því í mars 2017 þegar þeir voru 36.200. Hér ber að geta þess að mælingin í mars 2017 var óvenjuleg að því leyti að atvinnuleysi mældist þá mjög lágt og hlutfall starfandi nokkru hærra ef miðað er við mánuðina í kring. Þetta verður að hafa í huga við samanburð á milli ára.

Fréttin í heild á vef Hagstofu Íslands

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK