Settu upp rúbluhraðbanka í Smáralind

Rúbluhraðbankar í Smáralind.
Rúbluhraðbankar í Smáralind. Ljósmynd/Aðsend

Landsbankinn hefur sett upp rúbluhraðbanka í Smáralind í tilefni af heimsmeistaramótinu í fótbolta sem hefst í Rússlandi í júní.

Í rúbluhraðbankanum í Smáralind eru 1.000 rúblaseðlar og á vef bankans er hægt að fá upplýsingar um gengi rúblunnar. Rúbluhraðbankinn er á 2. hæð Smáralindar, við útganginn úr Smárabíói.

Rússneskar rúblur hafa alla jafna ekki verið fáanlegar á Íslandi en fyrsti leikur Íslands á HM verður gegn Argentínu í Moskvu þann 16. júní.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK