Fyrsta flug WOW air til Dallas

Dallas tilheyrir Texas-ríki og er þriðja stærsta borg ríkisins á …
Dallas tilheyrir Texas-ríki og er þriðja stærsta borg ríkisins á eftir Houston og San Antonio. Ljósmynd/Aðsend

WOW air fór sína fyrstu ferð til Dallas í dag. Flogið verður til Fort Worth-flugvallar í Dallas þrisvar sinnum í viku, á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum, í Airbus A330-vél flugfélagsins. 

„Við bjóðum WOW air velkomið til Dallas Fort Worth. Reykjavík er vinsæll áfangastaður auk þess sem koma WOW air opnar nýjar leiðir fyrir íbúa Texas sem vilja ferðast og sjá heiminn,“ er haft eftir John Ackerman, framkvæmdastjóra þróunarsviðs Dallas Fort Worth-flugvallar, í tilkynningu. 

Dallas tilheyrir Texas-ríki og er þriðja stærsta borg ríkisins á eftir Houston og San Antonio. Í borginni má meðal annars finna safn til heiðurs John F. Kennedy, The Sixth Floor Museum, en safnið er staðsett á efstu tveimur hæðum þar sem Lee Harvey Oswald á að hafa hleypt af skotum og ráðið forsetann af dögum.

Þá er Dallas líka mikil íþrótta- og menningarborg en stórliðin Dallas Cowboys, Dallas Mavericks, Texas Rangers og Dallas Stars eiga þar öll bækistöðvar. Að lokum má enginn láta það fram hjá sér fara að heimsækja Southfork-býlið þar sem Ewing-fjölskyldan úr sjónvarpsþáttunum Dallas hafði aðsetur.

Dallas er þrettándi áfangastaður WOW air í Bandaríkjunum en stutt er síðan Cleveland, Detroit, Cincinnati og St. Louis bættust við leiðarkerfi WOW air. Þá hefur WOW air einnig hafið sölu á flugi til Indlands en flug þangað hefst í desember á þessu ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK