Arnar Þór Sævarsson hefur verið skipaður formaður stjórnar Tryggingastofnunar ríkisins af Ásmundi Einari Daðasyni ráðherra.
Samkvæmt lögunum skipar ráðherra fimm menn í stjórn Tryggingastofnunar, formann og varaformann og jafnmarga menn til vara. Stjórn Tryggingastofnunar staðfestir skipulag stofnunarinnar, árlega starfsáætlun og fjárhagsáætlun og markar stofnuninni langtímastefnu. Stjórnin skal einnig hafa eftirlit með starfsemi stofnunarinnar og að rekstur hennar sé í samræmi við stefnuna og innan ramma fjárlaga á hverjum tíma.
Skipunartími stjórnarinnar er til næstu alþingiskosninga. Aðalmenn hennar eru: