Gengi hlutabréfa í Arion banka lækkaði um 0,8% á öðrum viðskiptadegi með bréfin og nam umfang viðskiptanna 148 milljónum króna. Dagslokagengi var 88,05 krónur á hlut en í útboðinu var fjárfestum seldur hluturinn á 75 krónur.
Frumútboði á fjórðungshlut í Arion banka í tengslum við skráninguna lauk á fimmtudaginn í síðustu viku og voru seldir hlutir fyrir samtals 39.028 milljónir króna. Á fyrsta degi viðskipta með bréfin hækkaði gengið um 18,4%.
Lækkun gengis hlutabréfa í Arion banka í dag var í takti við önnur skráð félög í Kauphöllinni en aðeins hlutabréf í Icelandair og Símanum hækkuðu. Mest lækkaði Sýn, eða um 1,44% og síðan Origo um 1,43%.