Vegna leiks Íslands gegn Nígeríu, sem fer fram á föstudag kl. 15 að íslenskum tíma, munu öll útibú Íslandsbanka opna klukkan átta, en bankinn mun loka kl. 15 svo starfsfólk geti horft á leikinn með sínu fólki.
Þjónustuver bankans mun einnig loka kl.15, að því er segir í tilkynningu.
Viðskiptavinum er bent á netbanka og app Íslandsbanka.