Margrét tekur við sem forstjóri Nova

Margrét Tryggvadóttir, nýr forstjóri Nova.
Margrét Tryggvadóttir, nýr forstjóri Nova. Ljósmynd/Nova

Stjórn fjarskiptafyrirtækisins Nova hefur ráðið Margréti B. Tryggvadóttur í starf forstjóra félagsins. Margrét var áður aðstoðarforstjóri Nova og hefur verið einn af lykilstjórnendum fyrirtækisins allt frá stofnun.

Margrét hefur tæplega tuttugu ára reynslu sem stjórnandi í fjarskiptageiranum en áður en hún kom að stofnun Nova starfaði hún meðal annars fyrir Tal og Vodafone. 

Í tilkynningu frá félaginu segir að samhliða þessum breytingum hafi tæknisviði Nova verið skipt upp í tvö svið; fjarskiptasvið og upplýsingatæknisvið. Benedikt Ragnarsson mun leiða fjarskiptasvið Nova og Gunnar A. Ólafsson mun stýra upplýsingatæknisviði. Báðir hafa þeir verið lykilstjórnendur hjá Nova undanfarin 10 ár.

Liv Bergþórsdóttir, fráfarandi forstjóri félagsins, og Jóakim Reynisson, fráfarandi framkvæmdastjóri tæknisviðs Nova, láta nú af störfum hjá félaginu en munu áfram gegna ráðgjafarhlutverki og vera nýjum forstjóra innan handar næstu mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK