Vöruskiptahallinn eykst verulega

Vöruskiptin voru óhagstæð um 176,5 milljarða króna í fyrra en árið á undan voru þau óhagstæð um 108,2 milljarða króna. Vöruviðskiptahallinn 2017 var því 68,3 milljörðum króna meiri en árið áður. 

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands. Á árinu 2017 voru fluttar út vörur fyrir 519,6 milljarða króna og inn fyrir 696,1 milljarð króna fob (741,3 milljarða króna cif). Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn 2017 161,7 milljörðum króna samanborið við 80 milljarða króna halla árið 2016.   

73,4% alls útflutnings fer til ríkja ESB                                                                                                 

Árið 2017 var verðmæti vöruútflutnings 17,8 milljörðum króna lægra samanborið við árið 2016, eða 3,3% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 53,9% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,5% hærra en á sama tíma árið áður. Útflutningur á áli og álafurðum átti stærstu hlutdeild í útflutningi á iðnaðarvörum árið 2017 eða 39% af heildarútflutningi.

Sjávarafurðir voru 37,9% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 15,2% lægra en á sama tíma árið áður. Lækkun var í nær öllum undirliðum sjávarafurða. Stærstu hlutdeild í útflutningi sjávarafurða árið 2017 áttu fryst flök (9,3% af heildarútflutningi) og ferskur fiskur (8,8% af heildarútflutningi). Stærstu viðskiptalönd í vöruútflutningi voru Holland, Spánn og Bretland en 73,4% alls útflutnings fór til ríkja ESB.

52,5% af innfluttri vöru koma frá ríkjum ESB

Árið 2017 var verðmæti vöruinnflutnings 50,5 milljörðum króna hærra en árið 2016, eða 7,8% á gengi hvors árs.¹ Mestu munaði um fjárfestingu í flutningatækjum, þá aðallega skipum og fólksbílum, innflutningi á unnum hrá- og rekstrarvörum ásamt innflutningi á eldsneyti og fjárfestingavörum. Stærstu hlutdeild í innflutningi áttu hrá- og rekstrarvörur (26,8%), fjárfestingarvörur (21,4%) og flutningatæki (18,8%). Stærstu viðskiptalönd í vöruinnflutningi voru Þýskaland og Noregur en 52,5% alls innflutnings kom frá ríkjum ESB.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK