Guðmundur nýr framkvæmdastjóri áhættustýringar

Guðmundur Kristinn Birgisson.
Guðmundur Kristinn Birgisson. Ljósmynd/Aðsend

Guðmundur Kristinn Birgisson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri áhættustýringar Íslandsbanka.

Guðmundur hefur starfað hjá Íslandsbanka frá árinu 2011 og hefur víðtæka reynslu af fjármálamörkuðum. Hann hefur starfað sem forstöðumaður útlána á einstaklingssviði og forstöðumaður áhættueftirlits Íslandsbanka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

Guðmundur er með doktorspróf í stærðfræðimenntun frá Indiana University en lauk BA-prófi í heimspeki og raunvísindum frá Háskóla Íslands. Hann hefur jafnframt lokið diplómanámi í kennslufræði til kennsluréttinda. Guðmundur tekur við starfinu 1. október

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK