Skuldabréfaútboði WOW air lokið

Skúli Mogensen, stofnandi og eigandi WOW air.
Skúli Mogensen, stofnandi og eigandi WOW air. Rax / Ragnar Axelsson

Skuldabréfaútboði WOW air lauk í dag og nemur stærð skuldabréfaflokksins 60 milljónum evra. Þar af hafa 50 milljónir evra þegar verið seldar og 10 milljónir verða seldar fjárfestum í framhaldinu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.

Pareto Securities hefur fyrir hönd WOW air umsjón með skuldabréfaútboðinu ásamt Arctica Finance. Bréfin verða gefin út með rafrænum hætti í Værdipapirsentralen ASA í Noregi og verða í kjölfarið skráð til viðskipta í Nasdaq-kauphöllinni í Stokkhólmi. Þátttakendur voru bæði innlendir og erlendir fjárfestar.

WOW air hefur jafnframt ráðið Arion banka og Arctica Finance til að hefja undirbúning að skráningu hlutabréfa félagsins innan 12-18 mánaða, bæði hérlendis og erlendis.

„Við þökkum fyrir þann mikla stuðning sem félagið hefur fengið í gegnum þetta ferli sem og öllum þeim sem tóku þátt í útboðinu. Niðurstaðan er okkur hjá WOW air mikil hvatning til að halda áfram okkar góða starfi og efla enn frekar alþjóðlegt flug og ferðaþjónustu hér á landi,“ segir Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi WOW air, í fréttatilkynningunni en hann býður ekki upp á viðtöl að svo stöddu.

Í upp­lýs­ing­um frá Pareto Secu­rites seg­ir að vaxtaviðmiðið sé Euri­bor-vext­ir en þó aldrei und­ir 0%. Í dag eru 3 mánaða Euri­bor-vext­ir í 0,319%. Það þýðir að vaxta­kjör skulda­bréf­anna eru 9% að trygg­ing­um viðbætt­um. Ekki kem­ur fram í upp­lýs­ing­un­um frá Pareto Secu­rities hverj­ar þær eru.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK