Landsbankinn greiðir 9,5 milljarða króna í sérstaka arðgreiðslu

mbl.is/Eggert

Landsbankinn greiddi í gær 9,5 milljarða króna í sérstaka arðgreiðslu. Bankinn hefur þar með greitt 24,8 milljarða króna í arð á árinu 2018 og alls nema arðgreiðslur bankans um 131,7 milljörðum króna frá árinu 2013. Um 99,7% af arðgreiðslum ársins renna í ríkissjóð.

Tillaga bankaráðs um arðgreiðslur var samþykkt á aðalfundi bankans 21. mars, að því er fram kemur í tilkynningu frá bankanum. Annars vegar var um að ræða 15.366 milljóna króna arð vegna rekstrarársins 2017 og var sú greiðsla innt af hendi 28. mars sl. Hins vegar er um að ræða sérstakan arð til hluthafa að fjárhæð 9.456 milljónir króna sem var á gjalddaga 19. september 2018.

Þá segir, að alls nemi arðgreiðslur bankans á árunum 2013-2018 um 131,7 milljörðum króna.

Eigið fé Landsbankans var 232,1 milljarður króna 30. júní sl. og eiginfjárhlutfallið var 24,1% og hafði þá verið gert ráð fyrir áhrifum arðgreiðslna á árinu 2018.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK