Nýjar íbúðir kosta 51 milljón að meðaltali

Hlutfall nýbygginga er afar misjafnt milli sveitarfélaga. Í Mosfellsbæ voru …
Hlutfall nýbygginga er afar misjafnt milli sveitarfélaga. Í Mosfellsbæ voru um 56% allra íbúðaviðskipta vegna nýbygginga á fyrri helmingi ársins en aðeins 6% í Reykjavík. mbl.is/Eggert

Fjórtán prósent allra íbúðaviðskipta á almennum markaði fyrstu sjö mánuði ársins voru vegna nýbygginga, samanborið við þrjú prósent árið 2010. Þegar síðasta uppsveifla náði hámarki árið 2007 var hlutfallið 18 prósent. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri greiningu húsnæðissviðs Íbúðalánasjóðs (ÍLS) um markað með nýjar íbúðir.

Hlutfall nýbygginga er afar misjafnt milli sveitarfélaga. Í Mosfellsbæ voru um 56 prósent allra íbúðaviðskipta vegna nýbygginga á fyrri helmingi ársins og í Garðabæ var hlutfallið 45 prósent. Í Reykjavík voru aðeins 6 prósent allra íbúðaviðskipta vegna nýbygginga.

Nýbyggðar íbúðir eru að jafnaði minni, og með færri herbergjum, en aðrar íbúðir á markaðnum. „Einna minnstar eru nýju íbúðirnar á Akureyri, en þær nýbyggðu íbúðir sem seldust þar á fyrstu sjö mánuðum ársins voru um 82 fermetrar að stærð eða 38 fermetrum minni en aðrar seldar íbúðir í bænum. Í Reykjavík voru nýjar íbúðir að meðaltali 89 fermetrar á sama tímabili sem er 20 fermetrum minna en aðrar íbúðir,“ segir í greiningu húsnæðissviðs ÍLS.

Fáar nýbyggingar henta fólki með lítið eigið fé

Nýbyggingar í Reykjavík eru að meðaltali um 32% dýrari á hvern fermetra en aðrar íbúðir, en söluverð nýrra íbúða í Reykjavík á fyrstu sjö mánuðum ársins var að meðaltali 51 milljón króna en verð annarra íbúða var að meðaltali 46 milljónir.

Í greiningunni kemur einnig fram að sérstakur skortur er á ódýrum íbúðum. Minni íbúðir í nýbyggingum eru skemur í sölu og líklegri til að seljast á eða yfir ásettu verði en stærri íbúðir í nýbyggingum. Þrátt fyrir þessa spurn eftir litlum íbúðum er ljóst að fáar af þeim nýbyggingum sem komið hafa á markaðinn að undanförnu henta þeim sem hafa lítið eigið fé til íbúðakaupa.

Aðeins 5 prósent nýbygginga á landsvísu hafa verið auglýst á undir 30 milljónum króna það sem af er ári og aðeins 2 prósent þeirra hafa verið auglýst á undir 25 milljónum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK