Hátæknisetur Alvotech fær framleiðsluleyfi

Þau líftæknilyf sem Alvotech er með í þróun eru gjarnan …
Þau líftæknilyf sem Alvotech er með í þróun eru gjarnan nefnd biosimilar-lyf. Þau eru markaðssett þegar einkaleyfi frumlyfja renna út og umtalsverður sparnaður skapast fyrir heilbrigðisyfirvöld um allan heim að sögn Alvotech. Fyrirtækið bendir ennfremur á, að rannsóknir hafi sýnt að tilkoma biosimilar-lyfja á markað verði til þess að fleiri sjúklingar fái meðferð við alvarlegum sjúkdómum. Ljósmynd/Aðsend

Lyfjafyrirtækið Alvotech hefur fengið gæðavottun og framleiðsluleyfi fyrir hátæknisetur fyrirtækisins á Íslandi. Róbert Wessman, stofnandi Alvotech, segir það ánægjulegt að geta nú hafið framleiðslu líftæknilyfja og fljótlega hefjist klínískar lyfjarannsóknir á þeim lyfjum sem koma á markað á næstu árum. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Þar segir ennfremur, að á aðeins fimm árum hafi Alvotech vaxið í að verða stærsta líftæknifyrirtæki landsins með yfir 200 vísindamenn í vinnu sem vinna að þróun og framleiðslu líftæknilyfja sem séu mikilvæg til meðhöndlunar á ýmsum algengum og erfiðum sjúkdómum eins og gigt og krabbameini. 

Framleiðsluleyfi Alvotech er veitt af Lyfjastofnun Íslands sem vann að úttekt á starfsemi fyrirtækisins í samstarfi við írsk lyfjayfirvöld á vormánuðum og nú liggur fyrir formlegt framleiðsluleyfi fyrirtækisins. 

Innan hátækniseturs systurfyrirtækjanna Alvotech og Alvogen í Vatnsmýrinni starfa um 250 vísindamenn frá 20 þjóðernum. Höfuðstöðvar Alvotech eru á Íslandi en fyrirtækið hefur einnig starfsstöðvar í Sviss og Þýskalandi. Rasmus Rojkjaer er forstjóri Alvotech.

Alvotech hefur sex líftæknilyf í þróun og stefnt er að því að klínískar lyfjarannsóknir hefjist á næsta ári. Núverandi söluverðmæti þeirra frumlyfja sem nú eru á markaði og Alvotech mun markaðssetja á heimsvísu er um 55 milljarðar Bandaríkjadala á ári. Alvotech stefnir að því að vera í hópi fyrstu fyrirtækja á markað með umrædd líftæknilyf þegar einkaleyfi þeirra renna út á næstu árum, að því er segir í tilkynningunni.


mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK