500 þúsund vörur á Já.is

Í vöruleit vefsins geta notendur borið saman vörur frá mismunandi …
Í vöruleit vefsins geta notendur borið saman vörur frá mismunandi söluaðilum og búið til óskalista. Skjáskot/Já.is

Allt vöruúrval íslenskra vefverslana er nú orðið aðgengilegt á nýjum vef Já.is sem settur var í loftið í dag. Þar má skoða yfir 500 þúsund vörur frá yfir 300 íslenskum vefverslunum og er markmiðið að auðvelda Íslendingum að gera góð kaup á netinu hjá íslenskum kaupmönnum.

Í vöruleit vefsins geta notendur borið saman vörur frá mismunandi söluaðilum, búið til óskalista og fengið sendar tilkynningar þegar vörur eru á tilboði eða ef verð breytist.

Samhliða þessari nýjum hefur vefur Já.is fengið nýtt útlit, og er nú léttari, stílhreinni og hraðari en áður, að því er segir í tilkynningu frá Já, en inniheldur jafnframt alla þá virkni sem notendur vefsins eru vanir.

„Á einum stað verður nú hægt að leita í vöruúrvali yfir 300 íslenskra vefverslana, sem er bylting fyrir íslenska neytendur. Við teljum að þær breytingar og viðbætur sem við erum að koma með á nýjum Já.is, séu jafn mikilvægar fyrir landsmenn og þegar við settum Já.is fyrst í loftið árið 2005.“ segir Hreinn Gústavsson, vöru- & viðskiptaþróunarstjóri Já.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK