Origo selur 55% hlut í Tempo

Finnur Oddsson, forstjóri Origo.
Finnur Oddsson, forstjóri Origo. Ljósmynd/Aðsend

Stjórnir  Origo og Diversis Capital undirrituðu í dag skuldbindandi kaupsamning um sölu á 55% hlut í Tempo til Diversis.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Í opinberri tilkynningu Origo hf. til Kauphallar Íslands þann 1. október var upplýst um samkomulag um einkaviðræður Origo við Diversis Capital, fjárfestingafélags frá Los Angeles sem sérhæfir sig í fjárfestingum í hugbúnaðar- og tæknifyrirtækjum, um sölu á 55% hlut í Tempo ehf. til Diversis.  

Heildarvirði Tempo ehf. í samningum er 62,5 milljónir Bandaríkjadala og mun Diversis eignast 55% í Tempo eftir kaupin. Diversis greiðir Origo  34,5 milljónir Bandaríkjadala en félögin munu sameiginlega leggja Tempo til handbært fé, 2 milljónir Bandaríkjadala, sem greiðist í hlutfalli við eignarhlut.  Jafnframt hafa báðir eigendur lýst yfir vilja til að styðja við innri og ytri vöxt félagsins á næstu árum, eftir því sem tækifæri gefast, að því er segir í tilkynningunni.

Áætlaður söluhagnaður Origo vegna viðskiptanna er um þrír milljarðar króna. Auk þess er áætlað að um tveir milljarðar króna færist til tekna, sem gangvirðisbreyting á 45% eignarhlut Origo í Tempo, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla.

Heildaráhrif viðskiptanna á afkomu Origo í rekstrarreikningi í fjórða ársfjórðungi eru því jákvæð um fimm milljarða króna.

„Kaup Diversis á hlut í Tempo eru afar góðar fréttir, bæði fyrir Origo og Tempo.  Í þessari sölu á ríflega helmingshluta Tempo felst viðurkenning á frábæru starfi starfsfólks Tempo og Origo síðustu ár.  Um leið eru verðmæti íslensks hugvits staðfest áþreifanlega, en síðustu misseri hefur slíkt þróunarstarf fengið aukna athygli og stuðning stjórnvalda, sem er vel,“ segir Finnur Oddsson, forstjóri Origo í tilkynningunni.

„Tempo hefur gengið vel undanfarin ár, vaxið hratt og stendur nú styrkum fótum. Árstekjur félagsins nema ríflega USD 20 milljónum og viðskiptavinir eru ríflega 12.000 í yfir 120 löndum, þjónað af 100 manna samhentum hópi starfsfólks í Reykjavík og Montreal.  Við fögnum því sérstaklega að fá Diversis til samstarfs um að gera veg og vanda Tempo enn meiri, en sérþekking þeirra á sviði tækni, hugbúnaðarþróunar og markaðssetningar mun nýtast til að styrkja vöruþróun og efla enn frekar tekjuvöxt á næstu árum,“ bætir hann við.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK