Enn fækkar atvinnulausum

Hagstofa Íslands.
Hagstofa Íslands. mbl.is/Kristinn Magnússon

Atvinnulausir í október 2018 mældust 1.400 færri en í sama mánuði árið 2017 og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,9% í október, segir í frétt á vef Hagstofu Íslands.

„Áætlað er að 204.700 manns á aldrinum 16–74 ára hafi að jafnaði verið á vinnumarkaði í október 2018, samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands, en það jafngildir 81,2% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 198.700 starfandi (±6.300) og 6.000 án vinnu og í atvinnuleit (±2.600). Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78,9% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,9%.

Samanburður mælinga fyrir október 2017 og 2018 sýnir að vinnuaflið jókst um 3.900 manns, en hlutfall þess af mannfjölda lækkaði um 0,6 prósentustig. Starfandi fólki fjölgaði um 5.200 manns en hlutfall starfandi af mannfjölda var nákvæmlega það sama. Atvinnulausir í október 2018 mældust 1.400 færri en í sama mánuði árið 2017 þegar þeir voru 7.400 eða 3,7% af vinnuaflinu. Alls voru 47.300 utan vinnumarkaðar í október 2018 sem er aukning um 2.800 frá því í október 2017 þegar þeir voru 44.500,“ segir á vef Hagstofu Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK