Lánshæfi ríkissjóðs staðfest

AFP

Matsfyrirtækið S&P Global staðfesti í dag óbreytta A/A-1 lánshæfiseinkunn ríkissjóðs fyrir langtíma- og skammtímaskuldbindingar í erlendum og innlendum gjaldmiðli með stöðugum horfum að því er segir í fréttatilkynningu frá fjármálaráðuneytinu.

„Samkvæmt matsfyrirtækinu S&P Global hefur ytri staða og ríkisfjármál á Íslandi styrkst á umliðnum árum. Smæð og samþjöppun hagkerfisins gerir það hins vegar að verkum að það er viðkvæmt fyrir þróun ytri þátta og mögulegri ofhitnun af völdum innlendra þátta. Matsfyrirtækið gerir ráð fyrir að draga muni úr hagvexti á komandi árum eftir því sem hægir á vexti ferðaþjónustugeirans,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

Með stöðugum horfum vegist á betri árangur á sviði ríkisfjármála og greiðslujafnaðar en gert hafi verið ráð fyrir, á móti því hve hagkerfið sé háð þróun alþjóðaviðskipta, og hættu á að innlenda hagkerfið ofhitni á ný vegna komandi kjarasamninga. Matið geti hækkað ef ríkisfjármál og ytri staða batni umfram væntingar næstu tvö árin. Lánshæfiseinkunn gæti á hinn bóginn lækkað ef áhætta tengd fjármálastöðugleika eða viðskiptajöfnuði raungerist meira en reiknað sé með á sama tímabili.

„Til að mynda gæti ofhitnum hagkerfisins haft neikvæð áhrif á samkeppnishæfi og hagvöxt til lengri tíma. Hið sama gæti átt við ef búsifjar verða í ferðaþjónustugeiranum með neikvæðum áhrifum á greiðslujöfnuð og bankakerfið. Hið síðastnefnda gæti einnig haft áhrif á húsnæðismarkaðinn í ljósi áhrifa ferðaþjónustugeirans á uppbyggingu í byggingageiranum undanfarin ár.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK