Íbúðalánasjóður hefur stofnað nýtt leigufélag undir nafninu Bríet. Mun félagið taka við flestum þeim fasteignum sem eru á hendi sjóðsins í dag og reka leiguþjónustu með sérstaka áherslu á landsbyggðina. Ákvörðun um þetta var tekin á stjórnarfundi sjóðsins í dag.
Fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar að meirihluti eignanna sé nú þegar í útleigu og tekur félagið yfir núgildandi leigusamninga í óbreyttri mynd. Rekstur félagsins er sjálfstæður og ættu leigjendur eignanna ekki að verða fyrir neinni röskun að því er segir í tilkynningunni.
Tilgangur félagsins er langtímaleiga íbúðarhúsnæðis á landsbyggðinni og mun félagið leita samstarfs við sveitarfélög í þeim tilgangi. Soffía Guðmundsdóttir, sem áður var framkvæmdastjóri ráðgjafasviðs Íbúðalánasjóðs, mun stjórna Bríeti.
Í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu segir að Bríet sé stofnuð til að vera viðbragð við erfiðri stöðu á húsnæðismarkaði sem birtist ekki síst í háu verði og skorti á leiguhúsnæði á landsbyggðinni. Hann telur að hægt verði að bæta gæði, auka framboð og draga úr kostnaði með því að sameinast um rekstur slíks húsnæðis í stærra félagi sem starfi í þessum tilgangi einum og hafi ekki hagnað að leiðarljósi, umfram það sem þarf til að sinna viðhaldi og endurnýjun húsnæðisins. Vísar Ásmundur í þá leið sem Finnar fóru til að vinna bug á húsnæðiskrísu.