Tiltölulega hófleg áhætta í fjármálakerfinu

mbl.is/Hjörtur

Tiltölulega hófleg áhætta er í fjármálakerfinu að mati fjármálastöðugleikaráðs en ráðið fundaði í fimmta sinn á þessu ári í dag. Hefur áhættan lítið breyst frá síðasta fundi ráðsins. Áfram slaknar á spennu í þjóðarbúskapnum en nokkur óvissa ríkir um framvinduna í ferðaþjónustu og áhrif kjarasamninga á efnahagslífið.

„Áfram er upptaktur í fjármálasveiflunni og skuldir vaxa nú hraðar en landsframleiðsla. Fasteignaverð hefur haldið áfram að hækka þótt dregið hafi nokkuð úr hækkun verðs á íbúðarhúsnæði. Innlendir flugrekendur hafa verið í mótvindi, en bein áhrif af mögulegu áfalli á fjármálakerfið eru talin takmörkuð,“ segir í tilkynningu. Viðnámsþróttur viðskiptabankanna sé talsverður. Eiginfjárhlutföll þeirra séu nokkuð yfir kröfum Fjármálaeftirlitsins og lausafjárstaða þeirra er vel yfir lágmarki samkvæmt reglum Seðlabankans.

„Þá er geta þjóðarbúsins til að takast á við áföll góð, m.a. vegna góðrar ytri stöðu, stórs gjaldeyrisforða og lágrar skuldastöðu hins opinbera og einkageirans. Svigrúm hagstjórnar til að mæta áföllum er einnig talsvert þar sem afgangur er á ríkissjóði, skuldir hins opinbera eru lágar í sögulegu samhengi og nafnvextir Seðlabankans töluvert frá núlli.“

Fjallað var um hraða þróun fjártækni sem kallar á aukinn viðbúnað varðandi net- og upplýsingaöryggi. Ennfremur hvernig treysta mætti sem best innlenda greiðslumiðlun í ljósi þeirrar þróunar sem væntanleg er. „Samþykkt var að beina tilmælum til Fjármálaeftirlitsins um að hækka sveiflujöfnunarauka um 0,25 prósentur, úr 1,75% í 2%. Hækkunin tekur gildi 12 mánuðum eftir ákvörðun Fjármálaeftirlitsins, fylgi stofnunin tilmælunum.“

Fundardagar fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2019 verða 1. apríl, 21. júní, 24. september og 17. desember. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK