Samruni Olís og Haga muni bitna á neytendum

Samkaup rekur meðal annars verslanir Nettó.
Samkaup rekur meðal annars verslanir Nettó. mbl.is/Hjörtur

Gangi samruni Haga og Olís í gegn óbreyttur munu Hagar ná að styrkja markaðsráðandi stöðu sína enn frekar og draga þannig með alvarlegum hætti úr virkri samkeppni á dagvörumarkaði. Þetta segir Ómar Valdimarsson, forstjóri Samkaupa, í fréttatilkynningu frá félaginu.

Þann 8. október kærðu Samkaup ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá 11. september um að heimila samruna Haga hf., Olíuverzlunar Íslands hf. og DGV ehf. til áfrýjunarnefndar samkeppnismála.

Samkaup gerði kröfu um að ákvörðunin verði felld úr gildi og samruninn ógiltur. Til vara gera Samkaup þá kröfu að áfrýjunarnefndin bindi samrunann frekari skilyrðum og takmörkunum einkum varðandi möguleika á sviði dagvörumarkaðar til skemmri eða lengi tíma, segir í fréttatilkynningunni.

Muni aðallega bitna á neytendum

„Samkeppniseftirlitið hefur sjálft metið það svo að Hagar hafi markaðsráðandi stöðu á dagvörumarkaði, með um 50-55% markaðshlutdeild á höfuðborgarsvæðinu. Gangi samruninn eftir óbreyttur munu Hagar ná að styrkja markaðsráðandi stöðu sína enn frekar og draga þannig með alvarlegum hætti úr virkri samkeppni á dagvörumarkaði,“ er haft eftir Ómari í tilkynningunni.

„Samruninn mun því hafa áhrif á allan markaðinn og mun fyrst og fremst bitna á neytendum,“ bætir hann við.

Ómar Valdimarsson, forstjóri Samkaupa.
Ómar Valdimarsson, forstjóri Samkaupa. Ljósmynd/Aðsend

Þá kemur þar fram að áfrýjunarnefnd samkeppnismála sé nú með málið á sínu borði og að forsvarsmenn Samkaupa muni ekki tjá sig frekar um málið fyrr en niðurstaða áfrýjunarnefndar liggur fyrir.

Fréttastofa mbl.is náði ekki tali af Ómari, hvorki áður en fréttatilkynningin var send út né eftir.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK