Bjartsýnn þótt tíminn sé naumur

Skúli Mogensen.
Skúli Mogensen. mbl.is/Rax

„Ég er mjög bjartsýnn á að þetta takist allt saman,“ sagði Skúli Mogensen, forstjóri WOW air, í samtali við Spegilinn á RÚV. Greint var frá því fyrr í dag að skuldabréfaeigendur félagsins hafi samþykkt skil­mála skulda­bréfa í flug­fé­lag­inu.

Indigo Partners hefur frest til loka febrúar til að gera upp hug sinn varðandi þátttöku í WOW air en félagið mun eignast 49% hlut í flugfélaginu ef kaupin ganga eftir. Skúli segir að það komi í ljós hvenær ferlið klárast en þeir ætli sér að ganga frá málum fyrir tilsettan tíma.

Michael O´Le­ary, for­stjóri Ry­ana­ir, sagði í morgun að flugfargjöld muni halda áfram að lækka og setti WOW air í flokk með þeim evrópsku flugfélögum sem mega síst við því.

Skúli segist sammála því að fargjöld muni halda áfram að lækka og að WOW sé vel tilbúið að taka þátt í því og bjóða lægri fargjöld.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK