Framkvæmdir sem stóðust áætlun

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Meðal þeirra verkefna á vegum ríkisins sem fóru mest fram úr áætlunum á tímabilinu 1998-2016 voru endurbætur á Þjóðminjasafninu og ný heilsugæslustöð í Kópavogi. Verkefni sem stóðust áætlun voru m.a. Barnaspítali Hringsins og viðbygging við Stuðla. 

Samkvæmt nýrri skýrslu Framkvæmdasýslu ríkisins (FSR) heyrir til undantekninga að veruleg frávik verði frá kostnaðaráætlunum við opinberar framkvæmdir á hennar vegum hér á landi. Að undanförnu hefur verið fjallað talsvert um ýmsar framkvæmdir sem farið hafa fram úr kostnaðaráætlunum, segir í fréttatilkynningu.

„Í skýrslu FSR kemur hins vegar fram að áætlanagerð í framkvæmdum er heilt á litið í góðu horfi núorðið hér á landi í alþjóðlegum samanburði. Í skýrslunni eru teknar fyrir þær opinberu framkvæmdir sem Framkvæmdasýsla ríkisins hafði umsjón með*, alls 139 talsins, sem lauk á árabilinu 1998 til 2016. Þá sést að dregið hefur úr framúrkeyrslu á seinni hluta tímabilsins og kostnaðaráætlanir sem gerðar eru af Framkvæmdasýslunni standast nú mun oftar eða að frávik eru innan viðurkenndra marka,“ segir í fréttatilkynningu frá FSR.

  • Raunkostnaður vegna framkvæmda á vegum FSR 1998-2016 fór um 4,5% fram úr áætlunum sem þykir vel viðunandi í alþjóðlegum samanburði.
  • Kostnaðarstjórnun hins opinbera hefur farið hratt batnandi síðustu ár. Framúrkeyrsla raunkostnaðar fyrri hluta tímabilsins var 7,7% en var aðeins 1,9% á seinni hluta tímabilsins.
  • Erfiðast og flóknast er að áætla kostnað vegna endurbóta innanhúss vegna ófyrirséðra atriða sem upp geta komið.

Hlutfallslegt frávik milli raunkostnaðar og kostnaðaráætlana í öllum verkefnunum 139 reyndist vera 1,8%. Sé horft til stærðar verkefna reynist vegið meðalfrávik raunkostnaðar og áætlana vera 4,5%. Yfir tímabilið 1998–2016 eru 56 verkefni eða 40% innan áætlunar og 83 eða 60% yfir áætlun. Nánar greint þá er 61 verkefni 5% eða meira yfir áætlun, 43 verkefni eru 5% eða meira undir áætlun og 35 verkefni eru þarna á milli.

Verkefnastjórnunarfélag Bandaríkjanna (Project Management Institute, PMI) hefur gefið út að eðlilegt frávik frá kostnaðaráætlunum vegna nýbygginga sé á bilinu -5% til +10%. Í skýrslunni eru 48 nýbyggingarverkefni. Aðeins í 27% nýbyggingarverkefna hér á landi, eða í 13 verkefnum, fór kostnaður meira en 10% fram úr áætlun. Alls 13 nýbyggingarverkefni voru 5% eða meira undir áætlun. Innan viðmiðunarmarka PMI var tæplega helmingur nýbyggingarverkefna eða 22 talsins.

Framkvæmdir við nýja öryggisrannsóknarstofu á Keldum fóru mikið fram úr …
Framkvæmdir við nýja öryggisrannsóknarstofu á Keldum fóru mikið fram úr áætlun. Ljósmynd Sigurbjörg Þorsteinsdóttir

Verkefni sem fóru fram úr áætlun

Meðal verkefna sem fóru mikið fram úr áætlun á þessu 18 ára tímabili voru ný öryggisrannsóknarstofa á Keldum, endurbætur við Þjóðminjasafn Íslands, ný lögreglustöð á Hólmavík, ný heilsugæslustöð í Kópavogi og ofanflóðavarnir á Fáskrúðsfirði.

Meðal verkefna sem kostuðu mun minna en kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir voru snjóflóðagarðar á Seyðisfirði, Ólafsfirði og í Neskaupstað, vöruhús fyrir ÁTVR, hjúkrunarheimili á Kirkjubæjarklaustri og endurbætur á ýmsum byggingum Alþingis og Háskóla Íslands.

Þau verkefni sem stóðust hvað best kostnaðaráætlun voru meðal annars Barnaspítali Hringsins, hæfingarstöð á Selfossi, viðbygging við Stuðla meðferðarstöð og snjóflóðavarnir í Bolungarvík.

„Erfiðast virðist vera, samkvæmt skýrslunni, að áætla kostnað vegna endurbóta innanhúss. Er það í takti við reynslu framkvæmdaaðila en óvissan í slíkum framkvæmdum er almennt mikil og algengt að breytingar verði á þeim, eftir að þau eru hafin. Einnig er algengt í slíkum framkvæmdum að hlutaðeigandi húsnæði reynist verr farið en gert var ráð fyrir.

Eins og áður sagði kemur fram að á tímabilinu 1998–2016 sem skýrslan tekur til fór vegið frávik raunkostnaðar frá áætlun lækkandi. Framúrkeyrsla raunkostnaðar fyrri hluta tímabilsins, 1998–2006, var 7,7% en á seinni hluta tímabilsins, 2007–2016, var það komið niður í 1,9% sem er mjög góður árangur. Koma þar meðal annars til tækninýjungar, svo sem rafræn þrívíð líkön af mannvirkjum sem leiða til réttari magntalna og minni aukaverka. Hyggst FSR halda áfram að vera leiðandi aðili við innleiðingu þessara tækninýjunga og með því ná fram enn þá meiri nákvæmni við áætlanagerð,“ segir í tilkynningu.

Sex verkefni námu milljarði eða meira

Þegar skoðaður var kostnaður vegna viðbótarverka fyrir öll verkefnin reyndist hlutfall hans vera 6%. Hlutfallið var mismunandi eftir tegundum verkefna og er 2,1% í viðbyggingum en í 9,2% í nýbyggingum stærri verka. Stærsti hluti þeirra framkvæmda sem skýrslan nær til kostuðu frá 14 upp í 500 milljónir króna. Kostnaður við sex verkefnanna nam yfir milljarði króna. Um helmingur verkefnanna flokkast undir minni nýbyggingar og stór endurbótaverkefni innanhúss og er algengast að verkefnin tengist heilbrigðisstofnunum. Flestar framkvæmdirnar voru á höfuðborgarsvæðinu.

 Sjá nánar hér

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK