Hætta flugi til Baltimore

mbl.is/Eggert

Icelandair ætlar ekki að fljúga til Baltimore-flugvallar í sumar. Ástæðan er að afkoman af fluginu var ekki nægjanlega góð, samkvæmt svari Icelandair við fyrirspurn ferðavefjarins Túrista.

Á Túrista kemur fram að í kringum höfuðborg Bandaríkjanna, Washington, er að finna þrjár alþjóðlegar flughafnir og ein af þeim er Baltimore/Washington-flugvöllur. Þangað flugu þotur Icelandair um langt árabil en í tengslum við endurskipulagningu félagsins í kringum íslenska efnahagshrunið voru áætlunarferðirnar til Baltimore lagðar niður. Vorið 2011 tók Icelandair upp þráðinn að nýju í Washington en þá með reglulegu flugi til Washington Dulles-flugvallar. Ferðalagið þangað, frá miðbæ Washington, er álíka langt og til Baltimore-flugvallar.

Stjórnendur WOW air völdu aftur á móti Baltimore sem sína heimahöfn á bandaríska höfuðborgarsvæðinu þegar félagið hóf Ameríkuflug sumarið 2015. Síðan þá hafa bæði flugfélögin aukið umsvif sín verulega í farþegaflugi til og frá Washington-svæðinu, Icelandair frá Dulles og WOW frá Baltimore. Í ársbyrjun í fyrra boðaði Icelandair óvænt endurkomu sína til Baltimore. Jómfrúarferðin var farin í lok maí og hélt félagið úti ferðunum þangað fram á haustið samhliða fluginu til Dulles. Í heildina fjölgaði flugferðum Icelandair um nærri 10 af hundraði til Washington-svæðisins síðastliðið sumar samkvæmt talningum Túrista.

Icelandair snýr hins vegar ekki aftur til Baltimore fyrir næstu sumarvertíð. Ástæðan er sú að afkoman af fluginu var ekki nógu góð samkvæmt svari félagsins við fyrirspurn Túrista.

Frá júní og fram í september í fyrra fækkaði farþegum Icelandair, til og frá Washington-svæðinu, um ríflega fjögur þúsund eða um 5 af hundraði. Þetta gerðist þrátt fyrir að Icelandair hafi flogið frá tveimur flugvöllum og samtals fjölgað ferðum um nærri níu af hundraði samkvæmt talningu Túrista.

„Varlega áætlað má gera ráð fyrir að tekjutap Icelandair af þessum samdrætti í Washington nemi að minnsta kosti rúmlega eitt hundrað milljónum króna yfir þetta fjögurra mánaða tímabil. Það er þó erfitt að leggja nákvæmt mat á tekjumissinn þar sem leiðakerfi Icelandair byggir að miklu leyti á tengiflugi,“ segir í frétt Túrista.

Það voru hins vegar 43 prósent fleiri sem nýttu sér áætlunarferðir WOW í Baltimore á þessu fjögurra mánaða tímabili. Viðbótin er þó hlutfallslega minni en varð í fjölda flugferða því WOW bætti verulega í flugið til Baltimore í fyrra. Í stað einnar ferðar á dag voru brottfarirnar tvær suma daga og í heildina fjölgaði áætlunarferðum WOW til bandaríska flugvallarins um nærri sextíu af hundraði samkvæmt talningum Túrista.

Frétt Túrista í heild

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK