Frá Samskipum til Daga

Pálmar Óli Magnússon hefur verið ráðinn forstjóri Daga.
Pálmar Óli Magnússon hefur verið ráðinn forstjóri Daga.

Pálmar Óli Magnússon hefur verið ráðinn forstjóri Daga, en fyrirtækið annast fasteignir, ræstingar og veitingaþjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir. Pálmar Óli, sem áður var forstjóri Samskipa, tekur við stöðunni 1. mars.

Pálmar Óli tekur við stöðunni af Guðmundi Guðmundssyni, sem lætur af störfum eftir áratugalangt starf.

„Guðmundur hefur leitt Daga af einurð í um tuttugu ár og gert það að leiðandi fyrirtæki á sínu sviði með útsjónarsemi sinni og þekkingu. Hans framlag og forysta við uppbygginu félagsins hefur verið lykilþáttur í frábærum árangri og ánægju meðal viðskiptavina og starfsmanna. Stjórn Daga færir honum einlægar þakkir fyrir störf sín,“ segir Patrick De Muynck, stjórnarformaður Daga, en Guðmundur mun áfram vera í hluthafahópi Daga og stjórninni til ráðgjafar samkvæmt fréttatilkynningu.

Saga Daga nær aftur til ársins 1980 þegar Ræstingamiðstöðin sf. var stofnuð, en hún varð síðar að ræstingadeild Securitas. Árið 2000 keypti alþjóðlega fyrirtækið ISS A/S ræstingadeild Securitas og árið 2017 keyptu svo stjórnendur fyrirtækisins, ásamt hópi innlendra og erlendra fjárfesta, allt hlutafé fyrirtækisins.

Pálmar Óli var eins og áður sagði forstjóri Samskipa, þar áður framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs Landsvirkjunar. Hann er með MBA-gráðu frá HÍ, CS-gráðu í vélaverkfræði frá sama skóla og Dipl.Ing. í vélaverkfræði frá háskólanum í Karlsruhe í Þýskalandi. Hann er kvæntur Hildi Karlsdóttur kennara og eiga þau þrjú börn.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK