Landsvirkjun úr stöðugum í jákvæðar

Landsvirkjun.
Landsvirkjun. mbl.is/Jón Pétur

Matsfyrirtækið S&P Global Ratings hefur breytt horfum á lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar úr stöðugum í jákvæðar. Fyrirtækið hefur jafnframt staðfest lánshæfiseinkunnina BBB fyrir lang- og skammtímaskuldir, með og án ríkisábyrgðar.

Að sögn S&P Global Ratings endurspeglar breytingin á horfunum jákvæða þróun Landsvirkjunar m.a. með tilliti til aukins fjárhagslegs styrkleika og minnkandi markaðsáhættu. Jákvæðu horfurnar endurspegla möguleikann á hækkun á lánshæfiseinkunn fyrirtækisins innan tveggja ára ef Landsvirkjun viðheldur bættri fjárhagsstöðu, að því er segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK