Bilun hjá Reiknistofu bankanna

Ljósmynd/Thinkstock

Bilun kom upp í morgun í kerfum hjá Reiknistofu bankanna sem gerir það að verkum að færslur birtast ekki á reikningsyfirlitum hjá Landsbankanum og Íslandsbanka.

Staða reikninga í netbönkum, öppum og hraðbönkum er engu að síður rétt. Viðskiptavinir eru beðnir um að gæta að því að endurtaka ekki greiðslur og/eða millifærslur þótt þær sjáist ekki á yfirliti, að því er segir í tilkynningu frá RB.

Þá segir, að bilunin geti einnig orsakað hægagang í netbönkum hjá Landsbankanum og Íslandsbanka.

„RB harmar atvikið og vinnur hörðum höndum að úrlausn málsins. Frekari upplýsingar verða veittar um leið og þær liggja fyrir,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK