Svana Huld nýr forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar

Svana Huld Linnet er forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans.
Svana Huld Linnet er forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans. Ljósmynd/Aðsend

Svana Huld Linnet hefur verið ráðin í starf forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans. 

Svana Huld starfaði hjá fyrirtækjaráðgjöf Arion banka frá árinu 2010. Hún hafði yfirumsjón með fjárfestatengslum hjá Exista á árunum 2006-2010, var sérfræðingur á skráningarsviði Kauphallarinnar á árunum 2001-2006 og starfaði sem verðbréfamiðlari hjá Búnaðarbankanum á árunum 1997-2001.

Svana Huld er viðskiptafræðingur að mennt og hefur auk þess lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK