Ingvar Freyr nýr hagfræðingur Samorku

Ingvar Freyr Ingvarsson hefur verið ráðinn í starf hagfræðings hjá …
Ingvar Freyr Ingvarsson hefur verið ráðinn í starf hagfræðings hjá Samorku. Ljósmynd/Aðsend

Ingvar Freyr Ingvarsson hefur verið ráðinn í starf hagfræðings hjá Samorku. Hann hefur undanfarin ár unnið sem hagfræðingur Samtaka verslunar og þjónustu, en hann mun hefja störf hjá Samorku í september.

Ingvar lauk M.Sc. gráðu í hagfræði með áherslu á orku- og loftslagshagfræði frá norska umhverfis – og lífvísindaháskólanum (Norges miljø- og biovitenskapelige unversitet (NMBU)) í september 2016, kennsluréttindum frá HÍ árið 2012 og B.S. gráðu í hagfræði frá sama skóla árið 2011.

Fram kemur í tilkynningu að samhliða námi hafi hann starfað sem sérfræðingur hjá hagfræðideild Landsbankans og við tölfræðilega greiningu hjá Seðlabanka Íslands. Þá hefur hann kennt hagfræði og skyldar greinar, bæði í menntaskóla og við Opna háskólann í Reykjavík, sem kennari í HÍ og við NMBU. Ingvar hefur verið hagfræðingur Samtaka verslunar og þjónustu frá árinu 2016. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK